Um Borgarhjól

Upphafið

Borgarhjól var stofnað í marsmánuði árið 1983 af þjónustuverkstæði sem annaðist meðal annars stillingar og viðgerðir á reiðhjólum frá reiðhjólaversluninni Erninum sem starfði þá á Spítalastíg.

Borgarhjól var fyrstu tvö árin rekið í húsnaæði að Vitastíg 5 og síðan í kjallara á Hverfisgötu 50. Á þessum árum voru nokkrir aðilar við reiðhjólaviðgerðir í Reykjavík en fljótlega upp úr 1990 fór þeim fækkandi.

Örn í Borgarhjólinu

Framhaldið

Frá árinu 1995 hefur Borgarhjól verið eina sjálfstæða reiðhjólaþjónustan á höfuðborgarsvæðinu sem tekur öll reiðhjól til viðgerðar. Í upphafi árs 1996 hófst sala á öryggisfatnaði fyrir mótorhjólafólk - þá aðallega hjálmar, hanskar og skór og síðar GoreTex fatnaður.

Haustið 1985 voru smíðaðar nokkrar reiðhjólastoðir sem síðan hafa verið lunginn úr vetrarstarfinu. Fyrstu árin var nánast engin vetrarvinna og það hefur breyst. Sú venja hefur skapast að í stað sumarleyfa hefur verið lokað í mars á hverju ári frá 1987.